Verslunarmannahelgin maður..... já því miður er ég að fara að
vinna alla helgina og geri þess vegna ekkert. Ég byrja að vinna
eftir nákvæmlega klukkutíma og verð að vinna næturvagt í
heila viku eða frá 21:00-09:00 og er oftast ekki gert mikið á
milli. Svo 2 dögum eftir að vinnuvikan er búin þá verður farið
til Kaupmannahafnar og þaðan til Tyrklands í 2 vikur. Það verður
vonandi drullugaman. En ég er búinn að hafa það nokkuð gott í
fríinu mínu og t.d stuttu eftir að ég vaknaði á laugardaginn
síðasta ákvað ég að gera doldið sem fékk adrenalínið til þess að
flæða maður.

Ég klifraði yfir bogann undir þessari brú. Hún er yfir á
sem heitir kaldakvísl og vegurinn er vesturlandsvegur.

Ég er ekki í neinum öryggislínum eða neitt og er að
skíta í buxurnar , það er þokkalega hátt niður, ég held að maður
myndi fara mjög illa ef maður myndi detta þarna niður.

Maður verður náttlega að taka góða pósu þegar maður er búinn með
erfiðasta partinn og láta eins og þetta sé "pís off
keik."

Svo er það bara að koma sér niður lifandi !!!!

Shackala Búmmmmm það var rosalegt að koma niður maður ,
ADRENALÍNIÐ var gjörsamlega í botni, maður var náttlega í mikilli
hættu nánast allan tímann og að horfa á bogann og vera níbúinn að
fara þarna yfir er ro-sa-leg tilfinning maður, ég mæli með þessu.
PASSIÐI YKKUR BARA. !!!!
Stay tuned !